15.5.06

Nýtt 

http://runabjork.minnsirkus.is

15.12.05

Cynic Guru...... 

Lukkan er með mér!!!!!
Cynic Guru tónleikunum á Nasa var frestað þangað til í janúar!!!!! Ooooog annað.... þeir verða á X-MAS tónleikunum á Nasa 21. des. Hver vill koma með mér?!!??!

13.12.05

Blogg númer 63 

Hættið að reka á eftir mér, ég blogga bara þegar minn tími er kominn. Og nú finn ég blogglöngunina hellast yfir mig.... eða ekki.... meira svona að láta undan þrýstingi.... ef ég get þá vélritað eitthvað rétt hér, ég kann nebbla bara orðið að skrifa "1 tafla á dag"......

Þið eruð meir en lítið heppin að vera ekki nálægt mér í gær og í dag. Ég nebbla fór til hennar Birnu hómópata í gær og hún lét mig fá einhverja kröftuga remedíu og ég er búin að vera bara eitt þrumuský síðan. Bara pirringur og vesen!!! Svo hló hún bara að mér þegar ég labbaði tuðandi frá henni sem endaði með að ég labbaði á blómatré! Var að fatta að það eru ekki nema 3 ár síðan ég byrjaði að laga sjálfa mig. Mér finnst þetta allt hafa gengið ótrúlega vel en ég geri mér líka fulla grein fyrir því að þetta er ekki nærri búið. En eins og Sálin syngur svo skemmtilega um þessa dagana þá hefur mér aldrei liðið betur.....

Talandi um tónlist, tékkið á þessum plötum:
Cynic Guru - Iceland
Lights on the Highway - Lights on the Highway
Ampop - My Delusions
Leaves - The Angela Test
Depeche Mode - Playing the Angel

Jólahlaðborð með vinnunni næsta laugardag, Broadway og BóShow!!! Eini ókosturinn við þetta er að nákvæmlega sama kvöld verða Cynic Guru með tónleika á Nasa og mig langar ógeðslega mikið að fara!!!!!!!!!
Talandi um tónleika þá eru ég, Heiðrún og Inga búnar að tryggja okkur miða á tónleika ársins í Laugardalshöllinni 7. janúar. Þar verða m.a. Damien Rice, Damon Albarn, Hjálmar, Sigurrós, Björk, Ham, EGÓ o.fl. o.fl. o.fl. Tékk this át.

Með ósk um góðan bata hjá mér, Rúnabrúna.....

6.11.05

50 ár!!! 

Sælt veri fólkið.
Það er nú ýmislegt búið að gerast síðan síðast, ég verð eiginlega að viðurkenna það.
Fyrst langar mig að nefna hálfraraldarafæli föður míns sem átti sér stað þann 23. október. Amma, afi, Kalli og Guðmundur Þór komu austur og fögnuðu áfanganum með okkur, mikið gaman, mikið fjör. Daginn áður fórum við systkynin til Guggúar miðils og úff hvað það var upplýsandi. Ég ætla samt ekkert að fara að blaðra því hér, þið verðið bara að hafa samband við mig ef þið viljið vita eitthvað.
Heiðrún saumaði á mig buxur og bol sem skólaverkefni og gubbaði því svo útúr sér um daginn að ég ætti að sýna það á tískusýningu á vegum Unglistar, það gæti sko enginn annar sýnt það því þetta væri sérsaumað á mig. Við systurnar vorum semsagt í spottlætinu í gærkvöldi og heyrði ég talað um Icelands Next Topmodel oftar en einu sinni;)
Ég er hætt að djamma.

2.10.05

1,2,3,4,5, 

Takk Arnar! Ég hef verið klukkuð. Mér finnst þetta mjög asnalegur siður en ætla þrátt fyrir það að verða við þessari áskorun svo þið þarna í Danmörku hafið eitthvað að lesa.
1. Ég er skósjúk! Ekki það að ég eigi eitthvað mikið af skóm.
2. Mér er sagt að ég hafi óeðlilega mikinn áhuga á mjög gömlum bílum.
3. Ef ég á að hitta ykkur einhverstaðar á einhverjum ákveðnum tíma, segið mér þá að mæta klukkutíma fyrr svo ég verði á réttum tíma.
4. Sveitin mín er minn uppáhaldsstaður á jarðríki held ég bara. Samt eftir því sem árin færast yfir verður alltaf minna og minna að gera þar, eiginlega bara heiti potturinn og tölvan og stöð 2. (Og auðvitað gömlu hjónin)
5. Mér er sagt að ég sé hrædd við að ná árangri.
Punktur og pasta! Þetta var hrikalega erfitt maður! Úfff....

Sorgarfréttir!!!!!!
Enginn meiri Laugarvegur!
Farvel vinur...
En jafnframt til lukku stúlkur með nýju heimkynnin.

Og þá er ekki fleira í þættinum í kvöld, veriði sæl.

7.8.05

...djúsinn 

Jæja þá er þetta afstaðið.
Ég fór á þjóðhátíð.
Geðveikt gaman, fer sko aftur á næsta ári.
Bubbi er kóngurinn!!!
Brekkusöngurinn er meiriháttar!
Djamm undir berum himni er það besta!
Þynnkuþunglyndi er ekki að gera góða hluti, enda hristi maður það af sér á tveimur dögum eða svo.
Sofa á hörðum jarðveginum er ekki gott.
Kúra sig lengst ofaní svefnpokann er gott.
Í heildina var þetta hin besta skemmtun, fjórar stjörnur af fimm mögulegum.
Takk Hlöðver fyrir alla aðstoð og aðstöðu.

Ég var svo ljónheppin í gær vera boðið á tónleikinn Bítl í gær, Katrín vann miða á FM957 og bauð okkur stúlkukindunum með sér. Ég bjóst nú ekki við miklu, bara nokkrum gaurum að spila Bítlalög, voða gaman. En VÁ hvað þetta var geðveikt! Miklu meira en bara þeir að spila. Svo þeir tóku þennan snilldar söngleik eftir hlé sem var settur saman úr mörgum lögum (svipað og í Moulin Rouge) með þennan snilldar leik í bland. Takk fyrir frábæra upplifun.

Meira fáið þið ekki að vita.

29.7.05

VERSLUNARMANNAHELGIN ÓGURLEGA!!!!! 

Þá er komið að því!!!!!
Stærsta helgi ársins er gengin í garð og í fyrsta skipti ever ætla ég að njóta hennar. Ég hef nebbla ALLTAF verið að vinna þessa helgi fyrir utan í fyrra, en þá einhverra hluta vegna gat ég ekkert gert og var bara í sveitinni allan tímann. En nú á sko að skella sér á ÞJÓÐHÁTÍÐ Í EYJUM!!!!!!!!!!!!! Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað litli kvíðasjúklingurinn í mér fer hamförum þessa dagana. Heiðrún gerði lista fyrir mig í fyrradag yfir allt sem ég þarf að taka með mér svo ég er aðeins rólegri. Svo er bara að bíða og sjá hvort Inga komist í Þorlákshöfn á skikkanlegum tima eður ei. ***Vera sebrahestur*** Heiðrún og Linda fóru á hádegi í gær með bátnum svo við Inga mætum bara og allt verður tilbúið. Þær búnar að tjalda, Hlöðver kominn með likkerinn...... Ó MEN ÉG HLAKKA TIL!!!!
Það er aldrei að vita nema ég setji hér nokkur orð um herlegheitin eftir helgi, en bara ef e-ð markvert gerist.
Skemmtið ykkur vel um helgina og gerið endilega e-ð af ykkur.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?